Svía leikurinn lang besti leikurinn undir stjórn Snorra
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Viggó Kristjánsson (JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP)

Snorri Steinn Guðjónsson settist niður í Rapyd stúdíóið á dögunum og mætti í viðtal hjá Sérfræðingnum þar sem Evrópumótið var gert upp og spáð í framtíðina og miklu meira til.

Farið var yfir alla leiki Íslands á Evrópumótinu og þegar komið var að ræða sigur Íslands gegn Svíþjóð á köldum sunnudegi í Malmö stóð ekki á svörum hjá landsliðsþjálfaranum þegar Sérfræðingurinn velti því fyrir sér hvort þetta hafi verið lang besti leikur íslenska landsliðsins undir stjórn Snorra Steins.

,,Það gekk allt upp og þetta er rétt, þetta er lang besti leikurinn undir minni stjórn. Þetta er örugglega einhver leikur frammistöðulega séð sem verður rifjaður upp," sagði Snorri Steinn.

Ísland mætti í leikinn með bakið upp við vegg eftir tap gegn Króatíu tveimur dögum áður. Sérfræðingurinn viðurkenndi að hann hafi ekki þorað að leyfa sér að trúa því að Ísland gæti unnið Svíþjóð á þeirra heimavelli, eftir að hafa upplifað súr töp á síðustu stórmótum.

,,Ef þú hefðir spurt mig að þessu á miðju móti þá er ég ekkert viss um að ég hefði verið með sömu pælingar og núna en það sem er erfiðast en á sama tíma fegurðin við þessi mót þá er það tilfinningar rússibaninn. Það er alveg erfitt að glíma við hann en þetta er mitt verkefni og þú sérð alveg og finnur vonbrigðin í öllum. Eðlilega eru menn að hugsa um það hvort þetta sé aftur að gerast og allt þetta. Ég fann samt einhvern neista. Ég fann á fundinum fyrir Svía leikinn að strákarnir voru gegnum mótið frábærir á fundunum og menn höfðu skoðanir og það datt ekkert niður þrátt fyrir tapið gegn Króatíu. Ég skynjaði að fókusinn var: Hvað ætlum við að gera gegn Svíum?”

,,Síðan tók ég smá rant eftir Króata leikinn þar sem ég fór yfir það sem ég var óánægður með en hugarfarið breyttist ekkert. Við vorum bara að fara í leikinn og við ætluðum að vinna hann. Það vissu allir að þetta yrði erfitt.”

Fyrirfram, Króatía eða Svíþjóð hvor leikurinn hélstu að yrði erfiðari?

,,Ég setti þetta bara þannig upp að við þyrftum að vinna annan þeirra. Ef þú skoðar maður fyrir mann og Svíar á heimavelli þá var þetta engin draumastaða að vera í, að þurfa vinna Svía á þeirra heimavelli," sagði Snorri Steinn meðal annars.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top