Verður Hörður ekki með í Grill66-deildinni á næstu leiktíð?
Hörður Facebook)

Við fyrirspurn Handkastsins til HSÍ varðandi þátttöku tilkynningar félaga fyrir Íslandsmótið á næstu leiktíð vakti athygli að lið Harðar frá Ísafirði sem sent hefur lið til keppni í meistaraflokki karla undanfarin ár hefur ekki skráð lið til leiks fyrir næstu leiktíð.

Hörður lék undir stjórn portúgalska þjálfarans, Pedro Nunes á síðustu leiktíð í Grill66-deildinni og endaði í 5.sæti deildarinnar með 24 stig.

Liðið vann Gróttu í undanúrslitum umspilsins um laust sæti í Olís-deildinni 2-0 en tapaði síðan einvígi sínu gegn Stjörnunni 3-0 í úrslitunum um sæti í Olís-deildinni.

Eins og staðan er í dag er ljóst að Hörður mun ekki leika í Grill66-deildinni á næstu leiktíð.

Hörður lék í Olís-deild karla tímabilið 2022/2023 undir stjórn Spánverjans Carlos Martin Santos. Þar endaði liðið á botni deildarinnar með tvö stig eftir að hafa gert tvö jafntefli.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top