Dregið var í 32-liða úrslit Powerade bikars karla í dag en sjö lið voru í pottinum að þessu sinni. 32-liða úrslitin fara fram 22. og 23. september. Jón Halldórsson formaður HSÍ og Ásgeir Jónsson, varaformaður HSÍ sáu um dráttinn að þessu sinni. Við sama tilefni tilkynnti Jón Halldórsson að HSÍ og CCEP undirrituðu fyrir helgi fimm ára samstarfssamning um mun bikarkeppni HSÍ áfram heita Powerade-bikarinn. Þau sjö lið sem voru í pottinum að þessu sinni voru: Fjölnir, Grótta, ÍBV B, ÍR, Víðir, Hvíti Riddarinn og Hörður. Allt lið í Grill66-deildinni að undanskildu ÍBV B. 32-liða úrslitin: Grótta - Víðir Þar með er ljóst að ÍBV B og Hörður mætast í bikarnum annað árið í röð en mikil læti voru á síðasta tímabili þegar liðin mættust í 32-liða úrslitunum. Kalla þurfti til lögreglu og fengu dómarar leiksins lögreglufylgd í Herjólf eins og Handkastið greindi frá á sínum tíma. Dómararnir fengu lögreglu fylgd í Herjólf - Hótað lífláti Hvíti riddarinn situr hjá í 32-liða úrslitunum og fara beint í 16-liða úrslitin ásamt öllum tólf liðunum í Olís-deild karla.
Fjölnir - ÍR
ÍBV B - Hörður

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.