Harðverjar með sigur í sveiflukenndum leik á Ísafirði
(Eyjólfur Garðarsson)

Í dag mættust Hörður og Víkingur 2 í Íþróttahúsinu á Torfnesi á Ísafirði í Grill 66 deild karla.

Bílferðin vestur hefur greinilega farið vel í Víkingana því þeir mættu mjög ferskir til leiks og tóku strax yfirhöndina. Þeir leiddu allan fyrri hálfleikinn. Lengst af leiddu þeir með 2-3 mörkum en síðustu 10 mínúturnar áttu þeir frábæran kafla og fóru inn til búningsherbergja með 6 marka forskot.

12-18 voru hálfleikstölur fyrir vestan.

Fyrstu 20 mínútur seinni hálfleiks héldu Víkingar í forskotið. Það var ekki fyrr en þegar 10 mínútur voru eftir að Harðverjar jöfnuðu í fyrsta skipti í leiknum í stöðunni 27-27. Síðustu 10 mínúturnar voru æsispennandi og tryggði Jonathan Santos Harðverjum sætan sigur með lokamarki leiksins þegar lítið var eftir.

Lokatölur 31-30 fyrir heimamenn í Herði.

Hjá Herði var Jhonatan Santos markahæstur með 12 mörk. Hermann Alexander Hákonarson varði 13 skot.

Hjá Víking var Benedikt Emil Aðalsteinsson markahæstur með 9 mörk. Daði og Kristján vörðu samtals 16 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top