Lettneski landsliðsmaðurinn, Endijs Kusners sem leikið hefur verið með Herði á Ísafirði undanfarin sex tímabil hefur yfirgefið félagið og ákveðið að hefja nýjan kafla á sínum ferli. Kusners sem er 23 ára gamall og hefur verið lykilmaður í liði Harðar undanfarin ár hefur samið við þýska liðið, DHK Flensborg sem leikur í þýsku 3.deildinni en félagið tilkynnti þetta á samfélagsmiðli sínum í gær þar sem hann var boðinn velkominn til félagsins. DHK Flensborg leikur í Flensburg og er nágrannalið, stórliðsins, Handewitt-Flensburg sem leikur í þýsku úrvalsdeildinni. Hjá DHK Flensborg er litið á komu Kušners sem mikilvæga styrkingu, sérstaklega eftir að félagið missti tvo reynslumikla leikmenn úr skyttustöðunni með stuttum fyrirvara. Forráðamenn félagsins telja að Lettinn geti bæði bætt liðinu stöðugleika og miðlað dýrmætri reynslu til ungs leikmannahóps. Magnus Frisk Jensen, þjálfari DHK Flensborg, segir að mikilvægt að félagið hafi brugðist hratt við á leikmannamarkaðnum. „Eftir óvænt brotthvarf Ole Günther og markahæsta leikmanns okkar, Mathias Sonne Domino, þurftum við að styrkja hópinn. Við vildum bæta við reynslu og stöðugleika í mjög ungan leikmannahóp. Endijs er aðeins 23 ára en hefur þegar aflað sér töluverðrar alþjóðlegrar reynslu og á jafnframt mikið inni sem leikmaður,“ segir Jensen. Hann greinir jafnframt frá því að Kušners hafi dvalið með liðinu í eina viku í júlí þar sem félagið hafi lagt áherslu á að kynnast honum sem einstaklingi jafnt sem handknattleiksmanni. „Hann féll strax vel inn í hópinn og passar afar vel við þá hugmyndafræði sem við vinnum eftir. Við erum sannfærð um að hann muni styrkja liðið bæði innan vallar sem utan,“ bætir þjálfarinn við. Kušners sjálfur segist spenntur fyrir nýja kaflanum á ferlinum. „Eftir krefjandi og lærdómsrík ár á Íslandi fannst mér tíminn vera kominn til að taka næsta skref. Viðræðurnar við DHK voru jákvæðar frá fyrsta degi og vikan sem ég fékk að eyða með liðinu í júlí staðfesti þá tilfinningu. Mér var strax tekið opnum örmum og hlakka til að leggja mitt af mörkum, halda áfram að bæta mig og hjálpa liðinu að ná góðum árangri á komandi tímabili,“ segir Kušners.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.