Stymmi spáir í spilin: 1. umferð Olís deild karla

Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna.

Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 1.umferð fari í Olís deild karla.

HK - KA (Fimmtudagur 18:30) / Sigurvegari: KA

KA voru eitt óvæntasta lið síðasta tímabils og hafa fengið Dag Árna aftur heim. HK hafa orðið fyrir miklum mannabreytingum og skakkaföllum á undirbúningstímabilinu og mæta særðir í leikinn. Ég held því að KA muni koma suður og vinna leikinn þægilega í Kórnum.

Selfoss - Valur (Fimmtudagur 19:30) / Sigurvegari: Valur

Selfoss gerði frábærlega á síðasta tímabili og hélt sér í deildinni þvert á mínar spár. Valsmenn stóðu uppi sem Íslandsmeistararar og koma vel undirbúnir til leiks í ár ef marka má Meistara Meistaranna leikinn í síðustu viku. Þetta verður þægilegur Valssigur.

Afturelding - Víkingur (Föstudagur 19:30) / Sigurvegari: Afturelding

Mjög spennandi leikur. Afturelding mætir til leiks með nýtt þjálfarateymi meðan Víkingur eru nýliðar í deildinni. Víkingar hafa spilað vel á undirbúningstímabilinu og mæta vel stemmdir til leiks. Ég held að Afturelding muni hafa þetta á endanum en ekki verður það auðvelt fyrir Mosfellinga.

FH - Stjarnan (Föstudagur 20:15) / Sigurvegari: FH

Nágrannaslagur af bestu gerð sem leitar alltaf í spennuleiki. Aron Pálmarsson að stýra sínum fyrsta leik fyrir FH meðan Stjarnan mætir leiks með talsvert breyttan hóp og munu ungir drengir fá eldskírn sína í deildinni í vetur. Ég held þetta verði þægilegur FH sigur á föstudagskvöldi í Kaplakrika.

Fram - Þór (Laugardagur 16:00) / Sigurvegari: Fram

Fram mæta til leiks eftir vonbrigði á síðasta tímabili. Þórsarar hafa styrkt sig vel fyrir átökin í deildinni í vetur og spilað vel á undirbúningstímabilinu. Líkt og í Mosfellsbæ þá reikna ég með heimasigri en Frammarar munu þurfa hafa virkilega mikið fyrir sigrinum á sprækum Þórsurum.

Haukar – ÍBV (Sunnudagur 18:00) / Sigurvegari: Haukar

Þessi félög hafa marga hildina háð. ÍBV hafa lent í miklum meiðslum á undirbúningstímabilinu meðan ég spái Haukum deildarmeistaratitlinum. Þetta verður því nokkuð þægilegur dagur á skrifstofunni fyrir Haukana.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top