Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna. Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 1.umferð fari í Olís deild karla. ÍBV - Selfoss (Fimmtudagur 18:00) / Sigurvegari: ÍBV Þór - HK (Fimmtudagur 19:00) / Sigurvegari: Þór Afturelding - FH (Fimmtudagur 20:15) / Sigurvegari: FH Víkingur - KA (Föstudagur 19:00) / Sigurvegari: KA Víkingar voru boðnir velkomnir í deildina í síðustu viku þegar Mosfellingar fóru illa með þá í byrjun leiks og svo aftur á sunnudeginum. KA gerði það sem flestir bjuggust við og rúlluðu yfir HK og litu vel út. Ég held það sé annað erfitt verkefni sem bíði Víkinga þó ég telji að þeir muni standa lengur í KA en þeir gerðu gegn Aftureldingu. Ágúst Elí verður í stuði og mun vera munurinn á liðunum í þessum leik sem KA mun vinna. Valur - Fram (Föstudagur 19:30) / Sigurvegari: Valur Alvöru stórleikur strax í 2.umferð. Bæði lið unnu sigra í fyrstu umferðinni þó Valsmenn hafi þurft að hafa talsvert fyrir sínum fyrir austan fjall. Valsmenn eru með talsvert sterkari hóp en Frammarar og held ég því að Gústi Jó og strákarnir hans sýni svipaða frammistöðu og gegn Haukum í Meistarar meistaranna og vinni Fram þægilega. Coolbet bjóða 1.78 í stuðul á Valssigur. Stjarnan – Haukar (Föstudagur 20:15) / Sigurvegari: Haukar
Suðurlandsslagurinn eins og hann hefur oft verið kallaður. Leikir liðanna í fyrstu umferð voru ólíkir þar sem Selfyssingar komu á óvart og gáfu Valsmönnum hörkuleik meðan ÍBV lenti í útreið gegn Haukum. ÍBV styrkti sig í vikunni og sóttu Magnús Dag Jónatansson frá KA og ég held að hann muni hafa úrslitaáhrif í þessum leik og ÍBV vinni sinn fyrsta sigur á tímabilinu eftir erfiðan leik gegn sprækum Selfyssingum.
Bæði lið koma inn í þennan leik eftir tap. HK tapaði illa gegn KA eftir að hafa verið í leik í um 40 mínútur meðan Þór tapaði gegn Fram en hugsa eflaust mikið um alla töpuðu boltana í þeim leik. Það er mikil stemmning í kringum Þórasara í vetur og ég reikna með þétt setinni Höll fyrir norðan þar sem Þór kemst á blað með sigri á HK og Skovsager finnur netmöskvana eftir erfiðan fyrsta leik. Coolbet bjóða 1.73 í stuðul á Þórsigur.
Virkilega spennandi leikur í Mosfellsbæ í kvöld. Fyrst og fremst vonum við að rafmagnið haldist á og leikurinn klárast á réttum tíma. Bæði lið voru með góða sigra í fyrstu umferð og komu Mosfellingar okkur mikið á óvart. Ég spáði Aftureldingu sigri í þættinum á mánudaginn en eftir að hafa sofið aðeins á þessu held ég að AP4 og strákarnir hans fari með torsóttan sigur af hólmi og verði með fullt hús stiga.
Lokaleikur umferðinnar fer fram á föstudagskvöldið í Garðabænum. Stjarnan tapaði gegn FH í fyrstu umferðinni en misstu báða þristanna sína útaf með rautt spjald. Bjarki Jóhannsson lánsmaður frá FH má einnig spila með þeim í þessum leik sem mun koma til með að hjálpa þeim í sóknarleiknum. Haukar léku við hvern sinn fingur gegn ÍBV og rúlluðu þeim hreinlega upp og ég reikna með öðrum öruggum sigri í Garðabænum hjá Haukunum á föstudagskvöldið þar sem getumunur þessara liða er töluverður á þessu stigi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.