Harðverjar fóru tómhentir úr Egilshöll
Toggi Pop

Fjölnir og Hörður mættust í dag í Grill 66 deild karla en leikið var í Egilshöll.

Fyrirfram var búist við jöfnum leik en það varð hinsvegar ekki raunin.

Fyrstu mínúturnar voru reyndar jafnar en svo tóku Fjölnis menn yfir leikinn. Voru þeir 8 mörkum yfir í hálfleik. 19-11 hálfleikstölur.

Fljótlega í seinni hálfleik voru Fjölnis menn komnir 12 mörkum yfir. Mest náðu þeir 17 marka forskoti. Unnu þeir leikinn einmitt með 17 mörkum. Ótrúlegir og óvæntir yfirburðir. 36-19 urðu lokatölur.

Hjá Fjölni var Heiðmar Örn Björgvinsson og Óli Pedersen markahæstir með 7 mörk. Markvarslan skilaði þeim 18 boltum.

Hjá Herði var Jhonatan Santos markahæstur með 6 mörk. Hermann Alexander varði 10 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top