Viltu hafa áhrif?
(Eyjólfur Garðarsson)

Viltu hafa áhrif? (Eyjólfur Garðarsson)

Handkastið auglýsir eftir góðu fólki af öllum kynjum til að bætast í þann góða hóp hjá okkur með það að markmiði að auka umfjöllun um Þjóðaríþróttina. 

Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um handbolta í að verða sjö ár og nú er komið að nýju verkefni, að halda úti vefsíðu sem fjallar um íslenskan og erlendan handbolta.

Það sem við erum að leitast eftir:

  • Umfjöllun um leiki í meistaraflokkum karla og kvenna hér á landi
  • Viðtöl eftir leiki í meistaraflokkum karla og kvenna hér á landi
  • Fréttaskrif um það sem er að gerast í handboltaheiminum innan lands og utan landsteinana
  • Ljósmyndum úr meistaraflokksleikjum karla og kvenna hér á landi

Umsækjendur mega koma hvaðan sem er á landinu en engin skuldbinding felst í því að hafa samband við okkur og vilja taka þátt.

Umsóknir sendist á netfangið handkastid(hjá)handkastid.net með upplýsingar um nafn, aldur, áhugasvið og hvaða hlutverk umsækjandi hafi áhuga að taka að sér.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top