Sunna Jóns stýrir handboltaæfingum fyrir ungmenni með fatlanir
Raggi Óla)

Handbolti er fyrir alla (Raggi Óla)

HSÍ og íþróttafélagið Ösp sendu frá sér sameiginlega tilkynningu fyrr í dag þar sem þau kynna með stolti handboltaæfingar fyrir börn og ungmenni með fatlanir. Í tilkynningunni segir að um sé að ræða skipulagðar æfingar, einu sinni í viku með frábærum þjálfurum

Yfirþjálfari æfingana verður Sunna Jónsdóttir, þroskaþjálfi og handboltakona sem spilað hefur 99 landsleiki fyrir Ísland og var fyrirliði Íslands á síðustu tveim stórmótum. Ásamt Sunnu munu Björn Eiríksson, íþróttakennari í Klettaskóla og Halldóra Ingvarsdóttir, þroskaþjálfi leiða verkefnið.

Æfingarnar munu fara fram í Klettaskóla á miðvikudögum, klukkan 17:00-18:30 og munu hefjast 10. september næstkomandi.

Íþróttafélagið Ösp stendur fyrir íþróttaæfingum hjá félagsmönnum, með sem fjölbreyttum hætti, þeim til heilsubótar, ánægju og þátttöku í íþróttamótum, þar sem hæfni hvers og eins nýtur sín sem best.

Alls eru 9 íþróttir æfðar hjá félaginu og er HSÍ stolt að bætast við í þann hóp og hvetjum við alla sem hafa áhuga á að mæta og kynna sér handbolta á skemmtilegan hátt.

Fyrir nánari upplýsingar má senda á [email protected]

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top