Stjarnan er í viðræðum við erlendan leikmann
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Stjarnan er í leit af styrkingu. (Baldur Þorgilsson)

Kvennalið Stjörnunnar sem endaði í 7.sæti Olís-deildar kvenna á síðustu leiktíð og hélt sér uppi eftir sigur á Aftureldingu í umspili um sæti í Olís-deildinni er í leit af frekari styrkingu fyrir tímabilið.

Samkvæmt heimildum Handkastsins er Stjarnan í viðræðum við færeyskan leikmann sem leikið hefur í Færeyjum allan sinn feril. Um er að ræða hana Ingu Mariu Roysdottur sem er örvhentur hornamaður fædd árið 2005 og lék með Kynidil í færeysku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en er uppalin í H71.

Patrekur Jóhannesson stýrir kvennaliði Stjörnunnar en hann er á leið inn í sitt annað tímabil með liðinu.

Inga Maria á að baki yngri landsleiki fyrir Færeyjar og þá hefur hún leikið einn landsleik fyrir A-landslið Færeyja.

Fyrir er Stjarnan með þær Tinnu Sigurrós Traustadóttur og Vigdísi Örnu Hjartardóttir en Vigdís Arna sem er fædd árið 2008 hefur verið í hægra horni Stjörnunnar síðustu tímabil. Aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, Hanna Guðrún Stefánsdóttir lék nokkra leiki með Stjörnunni í hægra horninu á síðustu leiktíð í fjarveru Vigdísar.

Ljóst er að Stjarnan er að reyna auka breiddina af örvhentum leikmönnum hjá sér.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Post Views: 28
Scroll to Top