Dagbjört Ýr Ólafsdóttir (ÍR handbolti)
Dagbjört Ýr Ólafsdóttir Hansen hefur skrifað undir samning við handknattleiksdeild ÍR til ársins 2027. Þetta tilkynnir félagið á samfélagsmiðlum sínum í kvöld. Dagbjört, sem er uppalin ÍR-ingur, lék með ÍBV undanfarin tvö tímabil. Þar áður var hún hluti af ÍR liðinu sem tryggði sér sæti í efstu deild vorið 2023. Dagbjört Ýr er vinstri hornamaður og skoraði hún 34 mörk í 21 leik fyrir ÍBV á nýafstöðnu tímabili í Olís-deildinni. ,,Við ÍR-ingar erum glaðir að endurheimta Dagbjörtu og hlökkum til að sjá hana láta til sín taka aftur á heimaslóðum," segir í tilkynningunni frá ÍR.
Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.