Erlendar fréttir: Berlín verður fyrir áfalli
(BERND WEISSBROD / dpa Picture-Alliance via AFP)

Erlendar fréttir allt á einum stað ((Baldur Þorgilsson)

Handkastið fylgist með handboltafréttum hvaðan nær úr heiminum. Hér birtast lifandi erlendar fréttir allan daginn auk þess sem stærri fréttir birtast sem sérfrétt á forsíðu Handkastsins.

Fylgstu með því sem er að gerast í handboltaheiminum erlendis hér á Handkastinu.

Erlendar fréttir: Þriðjudaginn 16. september:

14:30: Hægri hornamaður Berlínar meiddur

Hægri hornamaður Fuchse Berlín og ítalska landsliðsins, Leo Prantner er meiddur á öxl og leikur ekkert meira með liðinu á þessu ári. Hann gekkst undir aðgerð á öxlinni.

Erlendar fréttir: Mánudaginn 15.september:

19:30: Elmar skoraði þrjú í sigri

Eyjamaðurinn, Elmar Erlingsson skoraði þrjú mörk í sigri Nordhorn á Bayer Dormagen 30-27 á heimavelli í þýsku B-deildinni. Elmar og félagar eru þar með komnir með fjögur stig eftir þrjá leiki.

18:45: Átta marka sigur Flensburgar

Flensburg unnu Hannover-Burgdorf á heimavelli í lokaleik 4.umferðar þýsku úrvalsdeildarinnar í kvöld 37-29. Marius Steinhauser leikmaður Burgdorf var markahæstur á vellinum með níu mörk. Emil Jakobsen og Marko Grgic komu næstir með átta mörk fyrir Flensburg.

Erlendar fréttir: Sunnudaginn 14.september:

17:00: Lemgo vann Wetzlar

Lemgo unnu Wetzlar á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í dag 26-21. Lemgo er með sex stig eftir fjóra leiki á meðan Wetzlar eru með þrjú stig. Stefan Cavor leikmaður Wetzlar var markahæstur á vellinum með átta mörk.

17:00: Tjörvi Týr skoraði eitt mark

Tjörvi Týr skoraði eitt mark í sextán marka tapi Oppenweiler/Backnang gegn Essen í þýsku B-deildinni í dag 36-20. Tjörvi Týr og félagar eru með eitt stig að loknum þremur leikjum.

16:30: Magdeburg unnu Stuttgart

Íslendingalið Magdeburg unnu Stuttgart með níu mörk 32-23 í dag. Ómar Ingi skoraði sex mörk, Gísli Þorgeir fjögur og Elvar Örn Jónsson skoraði tvö.

Lenny Rubin var markahæstur Stuttgart með sjö mörk.

Erlendar fréttir: Laugardaginn 13.september:

20:30 David Späth framlengir við Rhein-Neckar Löwen

Þýski markmaðurinn David Späth hefur framlengt samning sinn við Rhein-Neckar Löwen til 2029. David sem er 22 ára gamall og eitt mest efni þjóðverja mun því taka slaginn með Hauki Þrastarsyni og félögum næstu árin.

20:05 Orri Freyr hafði betur gegn Stieven

Sporting sigraði Benfica 42-32 í uppgjöri toppliðanna í Portúgal í kvöld.

Orri Freyr Þorkelsson leikur með Benfica og Stiven Tobar Valencia leikur með Benfica.

Tölfræði úr leiknum liggur ekki fyrir að svo stöddu.

20:00 Janus Daði með sigur en Bjarki hvíldur

Pick Szeged sigraði Budai Farkasok-Rév í ungversku úrvalsdeildinni í dag 28-33. Janus skoraði 2 mörk fyrir Pick Szeged í dag.

Þeir eru á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir 4 leiki.

Veszprém lið Bjarka Más Elíssonar spilaði fyrsta leik sinn í ungversku deildinni í dag þegar þeir sigruðu FTC 30-42. Bjarki Már var hvíldur í dag eftir leik gegn Álaborg í vikunni í Meistaradeildinni.

16:15 Álaborg unnu stórleikinn í danska boltanum

Álaborg unnu toppslaginn í Danmörk gegn GOG fyrr í dag 40-29 eftir að hafa verið yfir 20-15 í hálfleik.

Juri Knorr og Thomas Arnoldsen skoruðu báðir 6 mörk fyrir Álaborg en Fredrik Bjerre var langmarkahæsti leikmaður GOG með 14 mörk.

Ágúst Elí Björgvinsson var í hóp hjá Álaborg en Niklas Landin er kominn til baka eftir meiðsli svo það styttist í að Ágúst fari til baka til Esbjerg þaðan sem hann var lánaður.

Álaborg situr á toppi deildinnar með fullt hús stiga eftir 3 umferðir. GOG er með 4 stig eftir þennan leik og er í 5.sæti.

09:15: Þorsteinn Leó skoraði þrjú

Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði þrjú mörk í fyrsta sigri Porto í gærkvöldi. Porto vann afar sannfærandi sigur á Arsenal 43-17 á útivelli.

Erlendar fréttir: Föstudaginn 12. september

22:05 Stjörnu prýdd lið HØJ sigraði íslendingana

Guðmundur Bragi Ástþórsson og Ísak Gústafsson mættu HØJ í kvöld og þurftu að sætta sig við 33-26 tap.

Guðmundur Bragi skoraði 2 mörk og Ísak gerði 1 mark en Ringsted er með 2 stig eftir 3.umferðir.

Michael Damgaard skoraði 10 mörk fyrir HØJ í kvöld

22:05 Donni hafði hægt um sig í sigri

Kristján Örn Kristjánsson hafði hægt um sig í kvöld og skoraði 2 mörk þegar lið hans Skanderborg sigraði Fredericia 33-30.

Guðmundar Þórðar Guðmundssonar er þjálfari Fredericia sem hafa unnið 1 leik af þremur í upphafi tímabilsins.

Donni og félagar eru hins vegar með 4 stig eftir 3 umferðir.

22:00 Melsungen og Erlangen gerðu jafntefli

Viggó Kristjánsson skoraði 8 mörk fyrir Erlangen í kvöld þegar þeir gerðu 32-32 jafntefli gegn Melsungen á útivelli.

Andri Már Rúnarsson tók einnig þátt í leiknum fyrir Erlangen og skoraði hann 4 mörk.

Arnar Freyr Arnarsson skoraði 1 mark fyrir Melsungen sem sitja í 13.sæti þýsku deildarinnar eftir 4 umferðir.

Erlangen eru sæti ofar, í 12.sæti, einnig með 3 stig eftir 4 umferðir.

22:00 Sveinn Jóhannsson og Chambery með sigur

Sveinn Jóhannsson og félagar hans í Chambery unnu góðan útisigur á Dunkerque í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld 29-33.

Dunkerque voru yfir 16-14 í hálfleik en Chambery rúlluðu yfir þá í síðari hálfleik.

Erlendar fréttir: Fimmtudaginn 11.september:

21:30 Dika Mem frá vegna meiðsla

Barcelona tilkynnti í kvöld að Dika Mem verður frá næstu 3 vikurnar vegna tognunar í nára.

Það þýðir að hann verður sennilega fjarverandi þegar Barcelona taka þátt í heimsmeistaramóti félagsliða.

21:10: Elvar og félagar með fyrsta sigurinn

Elvar Ásgeirsson og félagar í Ribe-Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni unnu sinn fyrsta sigur í deildinni þegar þeir unnu frábæran sigur á Bjerringbro/Silkeborg, 34-30. Bjerringbro/Silkeborg hafði byrjað tímabilið mjög vel og unnið báða leikina en heimamenn voru of sterkir í kvöld. Elvar skoraði fjögur mörk úr sex skotum.

19:10: Janus Daði og félagar töpuðu í Meistaradeildinni

Janus Daði Smárason tókst ekki að skora en gaf 3 stoðsendingar í tapi Pick Szeged á heimavelli 33-34 í dag þegar þeir mættu Wisla Plock í 1.umferðinni í Meistaradeildinni.

Staðan var jöfn 16-16 í hálfleik en Wisla Plock náði 3 marka forskoti í síðari hálfleik og sigldi sigrinum nokkuð þægilega heim undir restina.

19:00: Fyrstu stig Leipzig í vetur

Blær Hinriksson og félagar í Leipzig náðu í fyrstu sig sín í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar þeir gerðu 24-24 jafntefli við Göppingen á heimavelli þeirra.

Blær skoraði 4 mörk í leiknum en þurfti til þess 9 skot. Göppingen jafnaði metinn undir lok leiksins 24-24 og þar við sat.

Leipzig eins og áður sagði var að ná í sitt fyrsta stig og sitja í 17.sæti eftir 4 umferðir en Göppingen hafa 4 stig og eru í 9 sæti.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top