Miðasala á heimaleiki Fram í Evrópudeildinni hafin
Sævar Jónasson)

Dánjal Ragnarsson (Sævar Jónasson)

Fram hefur leik í riðlakeppni Evrópudeildarinnar eftir tæplegan mánuð þegar liðið tekur á móti Þorsteini Léo Gunnarssyni og félögum í Porto á heimavelli, þriðjudagskvöldið 14.október.

Fram hefur hafið miðasölu á heimaleiki sína í keppninni sem fara fram í október og nóvember. Sérstakt tilboð er til þeirra sem kaupa miða saman á alla leikina þrjá eða 9.000 kr.

Miðasalan fer fram á Stubb.is Smelltu hér á miða.

„Allur ágóði rennur beint í söfnun strákanna til að standa straum af kostnaði við þetta stórkostlega handboltaævintýri," segir í tilkynningunni frá Fram.

,,Styrktu íslenskan handbolta – tryggðu þér miða á Stubbur og vertu með okkur þegar Evrópa er undir,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Heimaleikir Fram í Evrópudeildinni:

Fram – FC Porto 14. október 18:45
Fram – Elverum 21. október 18:45
Fram – HC Kriens-Luzern 18. nóvember 18:45

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top