Andrea Jacobsen - wísland (BO AMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP)
Ísland og Færeyjar mætast í undankeppni EM kvenna sem fram fer í Póllandi, Rúmeníu, Tékklandi, Slóvakíu og Tyrklandi í desember. Leikur Íslands og Færeyja fer fram á heimavelli Fram í Úlfarsárdal klukkan 19.30 í kvöld. Sextán manna hópur Íslands í leiknum hefur verið valinn en alls voru nítján leikmenn valdir í verkefnið. Birna Berg Haraldsdóttir, Harpa María Friðgeirsdóttir og Matthildur Lilja Jónsdóttir verða ekki með íslenska liðinu að þessu sinni. Ísland leikur síðan sinn annan leik í undankeppninnni gegn Portúgal á sunnudaginn. Landsliðshópurinn gegn Færeyjum í kvöld: Markverðir: Hafdís Renötudóttir, Valur (68/4) Sara Sif Helgadóttir, Haukar (12/0) Aðrir leikmenn: Alfa Brá Hagalín Oddsdóttir, Fram (7/8) Andrea Jacobsen, Blomberg-Lippe (64/113) Dana Björg Guðmundsdóttir, Volda (10/21) Díana Dögg Magnúsdóttir, Blomberg-Lippe (63/86) Elín Klara Þorkelsdóttir, Savehof (24/79) Elín Rósa Magnúsdóttir, Blomberg-Lippe (29/56) Elísa Elíasdóttir, Valur (22/18) Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram (11/19) Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR (25/13) Lovísa Thompson, Valur (28/66) Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar (1/0) Sandra Erlingsdóttir, ÍBV (36/148) Sonja Lind Sigsteinsdóttir, Haukar (1/1) Thea Imani Sturludóttir, Valur (89/193)
Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.