Elín Klara Þorkelsdóttir - Ísland (BO AMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP)
Undankeppnin fyrir EM 2026 kvenna hefst í kvöld þegar íslenska landsliðið tekur á móti því færeyska í fyrsta leik riðilsins. Auk Færeyja er Ísland í riðli með Portúgal og Svartfjallalandi í D-riðli undankeppninnar. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og verður leikinn í Úlfarsárdalnum, heimavelli Fram. Athygli vekur að frítt er á leikinn fyrir alla iðkendur Þjóðaríþróttarinnar yngri en 16 ára. Í tilkynningu frá HSÍ í gær voru félög hvött til þess að fjölmenna á leikinn með sína iðkendur og styðja við bakið á stelpunum okkar. Þá kemur einnig fram að eftir leik munu áhorfendur fá tækifæri til að hitta stelpurnar og fá áritanir frá þeim. Á sunnudaginn mætir íslenska landsliðið síðan því portúgalska ytra í öðrum leik riðilsins.
Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.