Evrópuleikar landsliða – ný keppni EHF frá 2030
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Íslenska landsliðið gæti tekið þátt í nýrri keppni EHF árið 2030 (INA FASSBENDER / AFP)

Handknattleikssamband Evrópu hefur tilkynnt um nýja keppni, Evrópuleika landsliða, sem halda á fyrst í september 2030. Keppnin er hugsuð til þess að einfalda leið landsliða frá Evrópu inn á Ólympíuleikana. Stefnt er að því að keppnin verði haldin á fjögurra ára fresti og munu átta bestu karla- og kvennalandslið Evrópu etja þar kappi, miðað við árangur liðanna á síðasta EM.

Eins og áður segir er breytingunum ætlað að einfalda leið liða frá Evrópu inn á Ólympíuleikana en hingað til hafa lið unnið sér þátttökurétt á þeim með einkar flóknum hætti, annars vegar er það út frá árangri á HM en einnig hafa verið sæti í boði fyrir árangur á EM.

Hafa margir lýst þessu sem of flóknu og ófyrirsjáanlegu og eiga þessar breytingar að bæta úr því.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top