Katrín Scheving - wGrótta - wValur (Eyjólfur Garðarsson)
Í gærkvöldi mættust Fjölnir og Grótta í Egilshöll í Grill 66 deild kvenna. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.
Nánast frá upphafi höfðu Gróttu stúlkur tögl og hagldir í leiknum.
Í hálfleik var staðan 9-14 fyrir Gróttu. Í seinni hálfleik sigldu þær þessu örugglega heim og urðu lokatölur leiksins 18-29.
Ída Margrét Stefánsdóttir var með 8 mörk hjá Gróttu og markvarslan hjá þeim var algjörlega frábær. 19 skot varin hjá Andreu og Önnu Karólínu.
Hjá Fjölni voru Stefanía Ósk Engilbertsdótttir og Berglind Benediktsdóttir báðar með 4 mörk. Markvarslan skilaði þeim 9 boltum.
Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.