Valur hafði betur í toppslagnum í kaflaskiptum leik
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Arna Karitas Eiríksdóttir (Baldur Þorgilsson)

Toppliðin í Olís-deild kvenna, Valur og ÍBV mættust í N1-höllinni á Hlíðarenda í fyrsta leik 6.umferðarinnar í dag.

Valsstelpur höfðu betur með þremur mörkum 33-30 í kaflaskiptum leik eftir að staðan hafi verið 17-15 í hálfleik.

Valsstelpur komust mest fimm mörkum yfir í seinni hálfleik í stöðunni 25-20 þegar 13 mínútur lifðu leiks. ÍBV sýndi mikla seiglu og karakter og náði að jafna metin í 26-26.

ÍBV fór í 7 á 6 og Valsstelpur nýttu sér það og skoruðu tvö mörk í tómt markið. Það reyndist þungt fyrir ÍBV liðið og Valur reyndust sterkari aðilinn undir lokin og unnu að lokum þriggja marka sigur 33-30.

Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Thea Imani Sturludóttir og Lovísa Thompson skoruðu allar sjö mörk fyrir Val. Hafdís Renötudóttir varði 15 skot í marki Vals.

Hjá ÍBV var Sandra Erlingsdóttir markahæst með átta mörk og Birna Berg Haraldsdóttir skoraði sjö mörk úr 16 skotum. Amilia Froland náði sér ekki á strik í leiknum og var einungis með sjö varin skot.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top