Sigvaldi tognaður – Teitur Örn kallaður inn
(Andreas Gora / dpa Picture-Alliance via AFP)

Teitur Örn Einarsson ((Andreas Gora / dpa Picture-Alliance via AFP)

Teitur Örn Einarsson leikmaður Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðið sem er í Þýskalandi þessa dagana. Teitur Örn kemur inn í hópinn fyrir Sigvalda Björns Guðjónssonar leikmanns Kolstad í Noregi sem meiddist á æfingu landsliðsins í dag.

Það er handbolti.is sem greinir fyrst frá en Sigvaldi staðfesti tíðindin í samtali við Handkastið.

Sigvaldi Björn sagði í samtali við Handkastið að hann hafi tognað aftan í læri á æfingu liðsins í dag.

Handbolti.is segir frá því í frétt sinni að Teitur Örn hafi verið staddur á Íslandi í leyfi en mun fara til móts við landsliðið í fyrramálið. Þar er tekið fram að Teitur ferðist með með Icelandair frá Keflavík beint til München þar sem landsliðið er við æfingar.

Íslenska landsliðið leikur æfingaleik gegn Þjóðverja á fimmtudag og sunnudag. Leikirnir verða báðir sýndir á RÚV 2 en uppselt er á leikina.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top