wÍRíR (Sævar Jónasson)
Einum leik í Olís deild kvenna var að ljúka þar sem ÍR fékk Stjörnuna í heimsókn. ÍR stúlkur voru yfir sjö mörkum yfir í hálfleik og gáfu ÍR stúlkur ekkert eftir í þeim síðari og lönduðu góðum sjö marka sigri, 32-25. Sara Dögg Hjaltadóttir var atkvæðamest hjá heimastúlkum og skoraði 12 mörk. Hjá gestunum í Stjörnunni var Natasja Hammer atkvæðamest en hún skoraði 10 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.