Sara Dögg Hjaltadóttir (Sævar Jónasson)
Olís deild kvenna er komin í pásu vegna Heimsmeistaramótsins sem fram fer í Þýskalandi og Hollandi í nóvember og desember. Eftir 9 umferðir eru þrjú lið jöfn á toppnum í deildinni og óhætt að segja að deildin hafi aldrei verið jafnari. Strákarnir í Handkastinu völdu þá fimm leikmenn sem hafa verið bestir í deildinni að þeirra mati í þættinum síðastliðinn mánudag en listann má sjá hér að neðan. 1.Sara Dögg Hjaltadóttir (ÍR) Lang markahæsti leikmaður Olís deilar kvenna. Hefur verið frábær með ÍR í vetur sem sitja í toppsæti deildarinnar. Vakti athygli að hún var ekki valin í 35 manna hóp þeirra leikmenna sem má kalla inn í landsliðið en listinn var valinn í upphafi mótsins. 2. Sandra Erlingsdóttir (ÍBV) Kom heim úr atvinnumennskunni í vor og hefur gert nákvæmlega það sem búist var við af henni og tekið Eyjaliðið upp á næsta level. Hefur verið margoft í liði umferðarinnar og valinn Sage By Sage Sif leikmaður umferðinnar tvívegis í vetur. 3. Lovísa Thompson (Valur) Lovísa hefur verið frábær í vetur og minnt okkur á hvernig hún var þegar hún kom fyrst inn í deildina eins og stormsveipur. Hefur farið fyrir Valsliðinu í vetur og náð að vinna sér sæti í lokahóp landsliðsins þar sem við búumst við að hún fái stórt hlutverk. 4. Amalie Fröland (ÍBV) Frábært fyrir ÍBV að hafa smaið við þennan frábæra markmann. Það hefur sannað sig í undanfarin ár að til þess að geta unnið Íslandsmeistaratitilinn þarf markvarslan að vera í toppmálum og með þessum leikmanni er ÍBV að gefa sér meiri möguleika á þeim stóra í vor. 5. Katrín Tinna Jensdóttir (ÍR) Katrín Tinna hefur verið frábær með spútnikliði ÍR sem situr í toppsætinu. Hún hefur verið frábær á línunni í sókninni og staðið vörnina virkilega vel og er í lokahóp kvennalandsliðsins sem heldur til Þýskalands síðar í vikunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.