Ísland (MARIJAN MURAT / dpa Picture-Alliance via AFP)
Ísland mætti Þýskalandi í fyrsta leik sínum á HM sem fram fer í Þýskalandi og Hollandi fyrr í dag. Leiknum lauk með sigri Þjóðverja 32-25 en þær voru vel studdar af fullri höll í dag. Íslenska liðið sýndi flotta takta í dag og gáfu Þjóðverjum leik í um 50 mínútur. Tapaðir boltar reyndust liðinu dýrir en Þýskaland skoraði 8 mörk úr hraðaupphlaupi í kvöld gegn 2 hjá okkur. Þrátt fyrir tapið er margt jákvætt hægt að taka úr leik íslenska liðsins og full ástæða til bjartsýni fyrir komandi leikjum. Hér fyrir neðan má sjá einkunnagjöf Handkastsins úr leiknum. Hafdís Renötudóttir - 4 Sara Sif Helgadóttir - (Spilaði ekki nóg) Elín Klara Þorkelsdóttir - 5 Katrín Tinna Jensdóttir - 8 Dana Björg Guðmundsdóttir - 8 Thea Imani Sturludóttir - 6 Elín Rósa Magnúsdóttir - 7 Sandra Erlingsdóttir - 6 Alfa Brá Hagalín Oddsdóttir - 5 Alexandra Líf Arnarsdóttir - 6 Matthildur Lilja Jónsdóttir - 5 Katrín Anna Ásmundsdóttir - 5 Rakel Oddný Guðmundsdóttir - Spilaði of lítið Díana Dögg Magnúsdóttir - 5 Lovísa Thompson - 5 Þórey Anna Ásgeirsdóttir - 5 10 - Óaðfinnanleg frammistaða 9 - Frábær frammistaða 8 - Mjög góður 7 - Góður 6 - Ágætur 5 - Þokkalegur 4 - Lélegur 3 - Mjög lélegur 2 - Arfa slakur 1 - Óboðleg frammistaða
Byrjaði leikinn ílla, heilt yfir flöt frammistaða hjá henni í kvöld, en ekki auðvelt að fá svona mikið af hraðaupphlaupum á sig.
Dýrir tapaðir boltar hjá markahæsta leikmanni íslands í leiknum. Tók af skarið sóknarlega
Besti leikmaður Íslands, bæði sterk sóknarlega og traust varnarlega. Tók af skarið varnarlega, tók á móti árásum hærra varnarlega sem virkaðu! Um leið og hún féll niður þá tapaði hún.
Mjög flott, annar besti leikmanna ísland. lifandi varnarlega og kláraði færin sín vel. Gefur af sér
Þarf að taka meira af skarið, treystir of mikið á flæðið og uppsetningu fyrir sig
Passar vel uppá boltan, má skjóta meira sjálf. Spilaði vel uppá aðra leikmenn
Nýtti vítin ágætlega, sem greinilega hennar hlutverk. Lovísa kom fyrr inní sóknarleikinn en hún.
Gerði ágætlega varnarlega, þarf að reyna meira sóknarlega. Er skyttan í hópnum og þarf að taka Rúnar Kára á þetta og skjóta þegar hún fær tækifærið í sókn.
Hennar frumraun, fann fyrir styrk þjóðverjanna sóknarlega. Barðist vel varnarlega.
Brasi varnarlega í upphafi leiks, vantar smá precence varnarlega, hefur engu að tapa og ætti að taka smá badboy hlutverk
Spilaði lítið en lét verja frá sér eina færið sem hún fékk
Kemur með kraft, en vantar uppá gæðin. Fiskaði góð víti
Greinilega ekki heil, sækir mikið þvert á vörnina. Þarf að vera meira direct
Komst aldrei inní leikinn

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.