Þriðji sigur Fram 2 í röð
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Í kvöld mættust Fjölnir og Fram 2 í Grill 66 deild kvenna en spilað var í Egilshöll.

Fram höfðu aðeins yfirhöndina í fyrri hálfleik en afar lítið bar af á milli liðanna. Í hálfleik var staðan 12-11. Í seinni hálfleik hélt jafnræðið áfram og var þetta mjög jafnt og spennandi. Fjölnir var nálægt því að jafna leikinn en náði ekki að stíga skrefið til fulls.

Eftir að Fram stúlkur náðu að halda sjó allan seinni hálfleikinn unnu þær leikinn og urðu lokatölur 27-24. Þriðji sigur Fram stúlkna í röð.

Hjá Fram 2 var Sara Rún Gísladóttir markahæst með 9 mörk og Arna Sif Jónsdóttir varði 15 skot.

Hjá Fjölni var það Stefanía Ósk Engilbertsdóttir með 5 mörk. Signý Pála Pálsdóttir varði 11 skot.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top