Stefán Arnarson, þjálfari Hauka, var að vonum ánægður með sigurinn gegn Selfossi í Olísdeild kvenna fyrir austan fjall í kvöld. Stefán kom víða við í viðtali eftir leikinn. Hann ræddi frammistöðu liðsins, tíðar pásur á mótahaldinu, og frumstæðar aðstæður sem mynduðust á vellinum í kvöld þegar leikklukkan hætti að virka. Allt viðtalið við Stefán má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.