IMG_4826 (
Strákarnir í 5.flokki eldri í KA urðu í dag Norden Cup meistarar er liðið vann sænskaliðið, Kärra 18-16 í úrslitaleik mótsins. KA vann alla leiki sína á mótinu en liðið vann norska liðið, Kolbotn í undanúrslitum 25-13 og danska liðið HEI í 8-liða úrslitum 20-19. Þjálfari liðsins er Andri Snær Stefánsson þjálfari meistaraflokks lið KA. Fyrr í dag vann KA/Þór Norden Cup í sama aldursflokki og varð þar með annað íslenska liðið til að vinna mótið í kvennaflokki. Norden Cup er óopinbert norðurlandamót sem haldið er í Gautaborg á hverju ári þar sem lið frá Íslandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi mætast innbyrðis. Venjan er að bestu íslensku lið landsins í sínum aldursflokki mæti á mótið en Ísland átti þónokkur lið á mótinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.