EM hefst í dag á fjórum leikjum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Rémili missir af mótinu vegna meiðsla (Ayman Aref / NurPhoto via AFP)

Evrópumótið hefst í dag á fjórum leikjum í A og C riðli en þessir riðlar eru spilaðir í Herning og Osló. Ísland hefur leik á Evrópumótinu á morgun þegar liðið mætir Ítalíu í Kristianstad klukkan 17:00 á íslenskum tíma.

Hér að neðan má sjá leiki dagsins á Evrópumótinu.

A riðill
Spánn - Serbía kl. 17:00

Spánn og Serbía mætast í opnunarleik mótsins í Herning. Spánn er sigursælasta lið mótsins en liðið hefur níu sinnum unnið til verðlauna á mótinu. Tvisvar sinnum unnið gull, fimm sinnum silfur og tvisvar sinnum brons.

Serbía naði besta árangri sínum á EM árið 2012 þegar liðið vann til silfurverðlauna.

Við Íslendingar eigum okkar fulltrúa hér en Anton og Jónas munu dæma þennan opnunarleik mótsins.

Þýskaland - Austurríki kl. 19:30

Það verður sannkallaður grannaslagur þegar Þýskaland og Austurríki mætast. Þýskaland koma inn í leikinn sem sigurstranglegra liðið en Austurríki hefur fest sig í sessi á stóra sviðinu og taka núna þátt á EM í fimmta skiptið í röð.

Mikill rígur er á milli þessara nágrannaþjóða en Andy Wolff sagði í samtali við handball-planet að Austurríki spilaði mjög leiðinlegan handbolta og það verður því áhugavert að sjá hvernig Austurríkismenn vilja svara þessari gagnrýni þýska markvarðarins.

C riðill
Frakkland - Tékkland

Frakkar munu hefja titilvörn sína á leik gegn Tékkum en Frakkland vann Danmörk 33-31 í úrslitaleiknum 2024 eftir framlengdan leik.

Besti árangur Tékklands kom hinsvegar árið 2018 þegar liðið endaði í sjötta sæti.

Frakkar urðu fyrir blóðtöku rétt fyrir mót þegar það kom í ljós að Nédim Rémili gæti ekki tekið þátt vegna kálfameiðsla.

Noregur - Úkraína kl. 19:30

Telja verður að norska liðið sé sigurstranglegra í kvöld en liðið hefur tekið þátt á öllum Evrópumótum frá 2006 og besti árangur þeirra eru bronsverðlaun frá árinu 2020.

Úkraína var ekki með á EM árið 2024 þegar liðið komst ekki í gegnum forkeppnina. Besti árangur liðsins er 11. sæti árið 2002.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top