Faðir landsliðsþjálfarans skýtur á sérfræðinga RÚV
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Fjölmiðlamaðurinn, faðir landsliðsþjálfara Íslands og góðvinur Handkastsins, Guðjón Guðmundsson skaut á sérfræðinga RÚV fyrir EM í nýjasta þætti Handkastsins sem var síðasti upphitunarþáttur Handkastsins fyrir EM.

EM hefst í dag en fyrsti leikur Íslands á mótinu er á morgun þegar strákarnir okkar mæta Ítalíu í Kristianstad klukkan 17:00. Búast má við 2500 íslenskum stuðningsmönnum í höllinni í Kristianstad.

,,Ég er raunsær. Nú er ákveðnu tímabilið lokið. Ég kalla þetta “Ég held leikarnir” - Sérfræðingar nota þetta voða mikið í aðdraganda mótsins. Reyndar ekki mikið hjá ykkur í Handkastinu en ég sá þátt á RÚV þar sem “ég held” var mikið notað og ég hef því kallað þetta “Ég held leikanna” en nú er þeim lokið og alvaran tekur við," en Guðjón Guðmundsson er þá að vitna í hlaðvarpsþátt RÚV í aðdraganda EM, Biðstofuna þar sem Helga Margrét Höskuldsdóttir íþróttafréttamaður á RÚV fékk þá Ólaf Stefánsson, Kára Kristján Kristjánsson og Loga Geirsson til að hita upp fyrir mótið í nokkrum þáttum.

,,Liðið okkar er gott og það er í framför. Það hefur sýnt miklar framfarir frá árinu 2024 og síðan verðum við að sjá til hvernig fer þegar á hólminn er komið. Ég held að þetta sé allt á réttri leið og ég er bjartsýnn en raunsær.”

Hægt er að hlusta á síðasta upphitunarþátt Handkastsins fyrir EM í öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top