Snorri Steinn Guðjónsson (INA FASSBENDER / AFP)
Theodór Ingi Pálmason, handboltasérfræðingur til margra ára á Íslandi og fékk heimavinnu fyrir síðasta upphitunarþátt Handkastsins fyrir Evrópumótið þar sem hann var beðinn um að taka saman fimm atriði sem þurfa að ganga upp svo Ísland komist í undanúrslit á Evrópumótinu. Ísland er í riðli með Ítalíu, Póllandi og Ungverjalandi en tvö efstu lið riðilsins komast í milliriðil keppninnar. Tvö efstu lið milliriðlanna komast síðan í undanúrslit keppninnar en þangað er íslenska liðinu spáð af mörgum sérfræðingunum bæði hér heima og erlendis. Hér að neðan má sjá þau fimm atriði sem Teddi Ponza segir að þurfa að ganga upp svo Ísland komist í undanúrslit keppninnar: Atriði 1: ,,Fyrsta sem ég setti á blað var að við þurfum að fá Gísla Þorgeir og Ómar Inga í, ekki nema 80% af því sem þeir gera með sínu félagsliði, Magdeburg. Það er augljóst að þeir þurfa að eiga mjög gott mót til að við getum fengið að upplifa drauminn. Atriði 2: ,,Leysa Aron af sóknarlega. Hann var kannski ekki að byrja á síðasta stórmóti en hann kom yfirleitt sterkur inn og var að skjóta okkur úr snörinni þegar við vorum í vandræðum. Aron getur auðvitað spilað vörn og sókn en við erum með leikmenn sem geta leyst hann af í bakverðinum varnarlega. Maður var að binda vonir við að þessi leikmaður yrði Haukur Þrastarson. Að hann gæti leyst þetta hlutverk, koma inná eftir 10-15 mínútur og plaffað á markið en maður hefur smá áhyggjur af því eftir þessa tvo æfingarleiki um síðustu helgi.” Atriði 3: ,,Punktur þrjú er að við vitum að handbolti snýst um vörn, markvörslu og hraðaupphlaup. Viktor Gísli þarf að eiga mjög gott mót. Hann átti mjög góða leiki síðast og hann þarf að eiga gott mót og vera í toppstandi. Atriði 4: ,,Lifa af slæma kaflann. Veikleikinn í þessu liði að mínu mati hefur verið hversu lélegur slæmi kaflinn er. Við erum að tapa okkar slæma kafla stórt. Besti liðin eru kannski að tapa slæma kaflanum sínum með 2-3 mörkum en við erum að tapa honum með 6-7 mörkum. Það gengur ekki og það hefur oft verið grunnurinn af því að við séum að tapa þessum leikjum sem við máttum ekki tapa, svona stórt. Atriði 5: ,,Stjórnunin á liðinu í víðum skilningi. Við töluðum um það fyrir tveimur árum hvað Snorri Steinn virkaði ólíkum sjálfum sér á hliðarlínunni og virtist stundum vera hálfráðalaus á bekknum og virkaði stundum hálfstjórnlaust. Mér fannst það töluvert skárra á síðasta móti en þetta þarf að vera upp á 10. Bæði hvernig þeir lesa leikinn í rauntíma og hvað þeir gera í kjölfarið. Það má ekkert klikka í skiptingunum og vera með réttu blönduna bæði varnar og sóknarlega á réttum tíma. Við erum með marga leikmenn sem spila bara öðrum megin á vellinum og þetta getur verið púsluspil. Ég er í rauninni að segja að Snorri Steinn megi ekki vera “out coach-aður” eins og Gísli Þorgeir myndi orða það. Er það til of mikils ætlast?"

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.