Önnur meiðsli hjá Frökkum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Hugo Descar skorar gegn Wolff ((Photo by Thomas COEX / AFP)

Frakkar urðu fyrir öðru áfalli í gærkvöldi þegar vinstri hornamaður liðsins, Hugo Descat liðsfélagi Bjarka Más Elíssonar hjá Veszprém í Ungverjalandi, snéri sig á ökkla á æfingu liðsins í Osló.

Hann verður því ekki með liðinu sem mætir Tékklandi í fyrsta leik í kvöld en Frakkar eru þó bjartsýnir að hann verði tilbúinn síðar á mótinu.

Þetta eru önnur meiðsli Frakka á tveim dögum en í gær var það tilkynnt að Nedim Remili þurfti að draga sig úr hópnum vegna meiðsla og verður ekkert með Frökkum á mótinu.

Annar leikur Frakka á mótinu sem eru ríkjandi Evrópumeistarar er gegn Úkraínu á laugardaginn áður en liðið mætir Noregi á mánudaginn.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top