
Janus Daði Smárason ((Kristinn Steinn Traustason)
Ísland vann stórsigur á Ítalíu í fyrsta leik á EM í kvöld 39-26 eftir að hafa verið 21-12 yfir í hálfleik. Janus Daði Smárason var algjörlega frábær á báðum endum vallarins og var besti leikmaður Íslands í leiknum en hann kom inná um miðbik fyrri hálfleiksins og átti stórkostlega innkomu. Gísli Þorgeir og Ómar Ingi voru sömuleiðis mjög góðir sóknarlega. Elliði Snær Viðarsson fann sig því miður engan veginn í dag og var slakasti leikmaður Íslands í leiknum. Heilt yfir var þetta hinsvegar góð frammistaða og gefur leikurinn góð fyrirheit fyrir mótið. Einkunnir Íslands: 10 - Óaðfinnanleg frammistaða
Orri - 8
Gísli - 8
Ómar - 8
Elliði - 3
Óðinn - 6
Elvar - 7
Ýmir - 6
Viktor - 6
Janus - 9
Viggó - 7
Arnar Freyr - 5
Bjarki - 7
Teitur - 5
Haukur - 6
9 - Frábær frammistaða
8 - Mjög góður
7 - Góður
6 - Ágætur
5 - Þokkalegur
4 - Lélegur
3 - Mjög lélegur
2 - Arfa slakur
1 - Óboðleg frammistaða

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.