
Nikolaj Jacobsen - Danmörk (BO AMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP)
Þremur leikjum var að ljúka á Evrópumótinu en spilað var í B, D og F - riðlum en veislan er bara rétt að byrja og nóg af leikjum framundan Í B riðlinum mættust Danmörk og Norður Makedónía í leik sem endaði með tólf marka sigri Danmerkur en Danir voru yfir 17-12 í hálfleik en stungu síðan af og unnu að lokum 36-24 sigur. Færeyjar og Sviss mættust í D-riðli í leik sem endaði með jafntefli 28-28 en Sviss kom til baka eftir að hafa verið 15-13 undir í hálfleik. Færeyjar jöfnuðu leikinn undir blálokin eftir ótrúlegar lokasekúndur. Að lokum mættust Ungverjaland og Póllandi í okkar riðli og endaði leikurinn með 29-21 sigri Ungverjalands en Ungverjar leiddu í hálfleik 14-10. Úrslit kvöldsins : Insane ending of Switzerland - Faroe Islands.
Danmörk - Norður Makedónía 36-24
Færeyjar - Sviss 28-28
Ungverjaland - Pólland 29-21
Switzerland’s final attack starts at 59:18. The arm goes up at 59:38!pic.twitter.com/THK8sRUnv9#handball

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.