Ísland tapaði fyrsta leik á EM síðast á EM 2012
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ísland (Sævar Jónasson)

Fyrsti leikur strákanna okkar á Evrópumótinu sem haldið er í Danmörku, Noregi og Svíþjóð fer fram í dag þegar Ísland og Ítalía mætast í Kristianstad klukkan 17:00. Búist er við í kringum 2500 íslenskum stuðningsmönnum í höllinni í Kristianstad.

Veðbankar eru allir á því að Ísland vinni leikinn nokkuð sannfærandi en tölfræðin er einnig með Íslandi í liði.

Íslenska landsliðið hefur nefnilega ekki tapað sínum fyrsta leik á Evrópumóti á síðustu sex Evrópumótum eða síðan á EM 2012. Ísland tapaði þá með tveimur mörkum gegn Króatíu í fyrsta leik sínum á mótinu.

Í kjölfarið komu fimm sigurleikir í röð áður en liðið gerði jafntefli gegn Serbíu á EM 2024 sem var þá fyrsti leikur Íslands undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar landsliðsþjálfara Íslands á stórmóti.

Sex síðustu opnunarleikir Íslands á Evrópumótum:


EM 2024: Ísland - Serbía 27-27


EM 2022: Ísland - Portúgal 28-24


EM 2020: Ísland - Danmörk 31-30


EM 2018: Ísland - Svíþjóð 26-24


EM 2016: Ísland - Noregur: 26-25


EM 2014: Ísland - Noregur 31-26

Handkastið verður á vellinum í Kristianstad í dag og gerir upp leikinn í hlaðvarpsþætti sínum strax að leik loknum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top