Færeyjar - Elias Ellefsen a Skipagotu (Piotr Matusewicz / DPPI via AFP)
Elias Ellefsen á Skipagøtu er líklegur til að hefja leik í byrjunarliði Færeyja gegn Sviss í kvöld á Evrópumóti karla í handbolta, að því gefnu að upphitun fyrir leikinn gangi að óskum en Elias hefur verið að glíma við axlarmeiðsli síðan í Desember þegar hann meiddist í leik með Kiel. Elias hefur verið að jafna sig eftir meiðsli í hægri öxl sem hann varð fyrir fyrir jól. Þá var talið að hann yrði frá keppni í fjórar til sex vikur og hefur hann ekki leikið keppnisleik í um mánuð. Aðstoðarþjálfari færeyska landsliðsins, Hjalti Mohr Jacobsen, segir mikilvægt að fara varlega í upphafi mótsins og meta líðan leikmannsins rétt fyrir leik. Ef ekkert kemur upp á í upphitun mun Elias leiða sóknarleik liðsins frá byrjun. Færeyjar eiga fyrir höndum að minnsta kosti þrjá leiki á mótinu og því skiptir máli að dreifa álagi á lykilmenn liðsins. Færeyjar spila sinn fyrsta leik á mótinu í kvöld þegar liðið mætir Sviss.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.