Dagur Sigurðsson (Anne-Christine POUJOULAT / AFP)
Töluverðar líkur eru á því að Ísland og Króatía mætist í milliriðli Evrópukeppninnar í næstu viku en til þess þurfa báðar þjóðir að komast áfram uppúr sínum riðlum. Mikael Nikulásson einn af þáttastjórnendum hlaðvarpsins, Þungavigtarinnar var í símaviðtali í síðasta upphitunarþætti Handkastsins fyrir EM í gær en hann hefur verið sérstakur heiðursgestur Handkastsins í síðustu stórmótum og haft miklar og sterkar skoðanir á íslenska landsliðinu. ,,Það er ótrúlegt hvernig við förum alltaf að því að tapa ranga leiknum. Eins og í fyrra, Egyptarnir fara áfram í fyrra en við tókum þá frekar auðveldlega en þeir fara áfram því við töpum ranga leiknum of stórt." ,,Það er klárt mál að við þurfum að setja saman söfnun á Íslandi ef Krótía vinnur okkur aftur. Þá verður að viðurkennast að Gísli Þorgeir hafi haft rétt fyrir sér í fyrra. Þó svo að það sé búið að vera skjóta á hann fyrir þessi ummæli og annað, þá þarf maður stundum bara að segja hlutina eins og þeir eru. Ef Dagur tekur okkur aftur, því hann er með slakara lið en við þá er þetta spurning um þjálfarana, ekki neitt annað. Þá þurfum við að fara fá Dag hingað heim. Ef hann vinnur okkur aftur, tvö ár í röð. Hann er ekki með betra lið en Ísland og þeir eru ekki á heimavelli í ár," sagði Mikael Nikulásson, betur þekktur sem Mike í nýjasta þætti Handkastsins. Fyrsti leikur Íslands á Evrópumótinu hefst klukkan 17:00 í dag þegar strákarnir okkar mæta Ítalíu í Kristianstad í Svíþjóð. Annar leikur Íslands á mótinu fer fram á sunnudag er Ísland mætir Pólland og loks verða það Ungverjar sem mæta íslenska liðinu á þriðjudagskvöld í næstu viku.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.