Segir Ítalíu vera lið sem er vel skólað og skipulagt
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ítalía (Alessandro Tocco / NurPhoto via AFP)

Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfari Víkings er einn af sérfræðingum Handkastsins fyrir Evrópumótið.

Hann var gestur í hlaðvarpsþætti Handkastsins í síðustu viku þar sem hitað var upp fyrir riðil Íslands sem hefst í dag er Ísland mætir Ítalíu. Aðalsteinn var beðinn um að segja hlustendum aðeins um ítalska liðið.

,,Þarna eru leikmenn sem Bob Hanning, þjálfari Ítalíu og framkvæmdastjóri Fuchse Berlín hefur fengið bæði til Potsdam og Fuchse Berlín. Síðan eru Mengon bræður, annar er að spila í Stuttgart, þetta eru ungir strákar sem eru góðir maður á mann og eru klókir að losa boltann frá sér. Hafa verið í skóla hjá Misha Kaufmann og þeir eru seigir. Ítalarnir hafa komið á óvart í síðustu leikjum og í undankeppninni,” sagði Aðalsteinn Eyjólfsson meðal annars sem hafði kynnt sér Ítalina vel.

Leo Prantner er til að mynda hægri hornamaður Ítala en hann leikur með Fuchse Berlín. Hann hefur hinsvegar ekkert leikið með liðinu á tímabilinu vegna meiðsla en er kominn aftur á völlinn.

,,Þetta er lið sem er vel skólað og vel skipulagt og hafa einstaklingsgæði sérstaklega maður á mann. Þeir eru með sterka hornamenn, eru með reyndan markmann í Ebner sem er að spila með Leipzig,” sagði hann einnig.

Ísland og ítalía hefst klukkan 17:00 í dag en Handkastið verður á svæðinu. Leikurinn verður gerður upp í hlaðvarpsþætti Handkastsins strax að leik loknum.

Upphitunarþátt Handkastsins fyrir EM má hlusta hér:

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top