
Færeyingar fagna ((Photo by Cornelius Poppe / NTB / AFP)
Færeyjar náðu jafntefli gegn Sviss í opnarleik þeirra á Evrópumótinu í gær 28-28 en þeir jöfnuðu þegar 2 sekúnudur voru eftir af leiknum. Það voru þó fleiri hlutir sem heilluðu í gær heldur en spilamennska Færeyja en það voru áhorfendur þeirra. Tæplega 10% af íbúa fjölda Færeyja eru mættir til Noregs að styðja strákanna og því óhætt að segja að handboltaæðið sem greip um sig í Færeyjum fyrir tveim árum þegar þeir tóku þátt á sínu fyrsta stórmóti haldi áfram. Rúmlega 5.000 Færeyingar voru í Telenor höllinni og hallar ekki á neinn með að segja að þeir hafi verið menn leiksins. Myndband má sjá af stemmningunni hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.