Áttum ekki í vandræðum með framliggjandi varnarleik Ítala
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ísland - Óðinn Þór Ríkharðsson - Viggó Kristjánsson (JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP)

Strákarnir okkar unnu sannfærandi þrettán marka sigur á Ítalíu í fyrsta leik sínum á Evópumótinu í gærkvöldi, 39-26 eftir að staðan hafi verið 21-12 Íslandi í vil í hálfleik.

Handkastið er í Kristianstad og gerði upp leikinn í hlaðvarpsþætti sínum strax eftir leik. Mikil jákvæðni var yfir leik Íslands í leiknum og var margt jákvætt í sóknarleik Íslands í leiknum sem prufðu mörg afbrigði af sóknarleik gegn framandi vörn Ítala.

,,Það er ótrúlegt að vera tala um 13 marka sigur hér í Rapyd stúdíóinu eftir leik miðað við hvernig leikurinn byrjaði fyrsta korterið. Það var jú vissulega mjög auðvelt fyrir okkur að skora og koma okkur í góð færi en á sama tíma var mjög auðvelt fyrir þá að skora. En þegar tvö lið mætast og það er auðvelt fyrir betra liðið að skora þá styttist oftast í það að veikara liðið á pappír lendi í því að það sér erfiðara fyrir þá að skora,” sagði Arnar Daði, Sérfræðingurinn meðal annars.

,,Ég held að það hafi orðið Ítölum að falli. Þetta minnir mig svolítið á ÍR í Olís-deild karla. Þetta er svolítið gung ho. Það er bara sókn, sókn, sókn. Við áttum ekki í vandræðum með framliggjandi varnarleik Ítala en við vorum með fullt af lausnum. Það var margt sem við gerðum sem var virkilega gott.”

,,Snorri Steinn hefur haft einhverja 7-8 mánuði í undirbúning fyrir þennan leik og það hefur sýnt sig. Hann byrjaði aðeins 6 á 6, margt sem gekk vel og annað ekki, þetta var erfitt. Við keyrðum upp í 7 á 6 og náðum Ítölunum niður í kjölfarið. Síðan ákveður hann að vera línumannslaus og ég átta mig ekki á því hvort hann hafi ætlað sér að gera það en út frá skotnýtingu og hversu langt línumennirnir voru frá því að vera inn í leiknum. En þetta var klárlega á einhverjum blaði hjá Snorra en ég bjóst við því að Ísland yrði lengur og meira í 7 á 6," sagði Arnar Daði meðal annars.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top