Elliði þurfti ekki á neinum orðum frá Snorra að halda – Ég vissi þetta manna best sjálfur
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Elliði Snær Viðarsson átti ekki góðan leik fyrir Ísland þrátt fyrir góðan sigur gegn Ítalíu í gær. Handkastið er í Kristianstad og kíktu á strákanna okkar á æfingu liðsins í hádeginu í dag.

,,Skotin klikkuðu í gær og það er nú ekkert mikið flóknara en það. Þetta var ákveðin hauskúpuleikur í færanýtingu og kannski sérstaklega einn á einn í vörn í fyrri hálfleik en það var fínt að hafa bara klárað þetta núna. Allir hinir voru góðir og það er allt í lagi einn sé lélegur þegar allir hinir eru góðir."

,,Ég ætlaði mér ekkert að vera lélegur en fínt að þetta sé búið og nú byrja ég mótið þótt allir hinir hafi byrjað í síðasta leik."

Elliði Snær Viðarsson segist ekki hafa þurft á neinum orðum frá Snorra Steini Guðjónssyni, þjálfara Íslenska landsliðsins en hann vissi það best sjálfur að hann var ekki góður í gær.

,,Ég vissi þetta best sjálfur og þurfti ekkert á því að halda, létt skot í dag fyrir fund en annars bara allir léttir sko."

Viðtalið í heild sinni við Ellíða má sjðá í sjónvarpinu hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top