EM í dag- Frakkar fóru létt með Úkraínu, Spánverjar unnu Austurríki og Króatar hörkuðu út sigur
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Melvyn Rochardson (Damir SENCAR / AFP)

Þremur leikjum var að ljúka á Evrópumeistaramótinu í Noregi, Svíþjóð og Danmörku en leikið var í A, C og E riðlum.

Austurríki og Spánn mættust í fyrsta leik dagsins í A-riðli og vann Spánn fimm marka sigur 25-30 en staðan í hálfleik var 12-19 fyrir Spánverjum, næstu leikir liðanna er að Austurríki mætir Serbum á meðan Spánverjar mæta Þjóðverjum.

Úkraína og Frakkland mættust í fyrsta leik dagsins í C-riðli og vann Frakkland 26-46 en staðan í hálfleik var 12-24 fyrir Frakkland, næstu leikir liðinna er að Úkraína mætir Tékklandi á meðan Frakkar mæta Noregi.

Króatía og Georgía mættust í fyrsta leik dagsins í E-riðli og vann Króatía 3 marka sigur 32-29 en staðan í hálfleik var 15-14 fyrir Georgíu, næstu leikir liðanna er  að Króatar mæta Hollandi á meðan Georgía mætir Svíum.

Úrslit dagsins:

Austurríki-Spánn 25-30

Úkraína- Frakkland 26-46

Króatía-Georgía 32-29

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top