
Snorri Steinn Guðjónsson (Johan Nilsson/TT / various sources / AFP)
Snorri Steinn Guðjónsson var ánægður með leik strákanna okkar í 13 marka sigri liðsins gegn Ítalíu á föstudagskvöldið. Sóknarleikurinn gekk smurt fyrir sig og var íslenska landsliðsins með margar útfærslur af sóknarleik í leiknum. Snorri gerir ráð fyrir allt öðruvísi leik gegn Pólverjum á morgun en Ísland og Pólland mætast í 2.umferð riðlakeppni Evrópumótsins í Kristianstad á morgun klukkan 17:00. ,,Þetta var planið inn í þennan leik, uppleggið var að við værum með yfirhöndina í taktíska hluta leiksins og værum að spila frekar inná þá en þeir okkur. Ég vildi vera mixa þessu saman og mér fannst það takast vel.” Meðal útfærsla á sóknarleik Íslands þá tók Snorri Steinn línumanninn útaf og lék með fjóra útileikmenn líkt og Ítalar gera og höfðu gert í aðdraganda mótsins. ,,Þetta fæðist á sama tíma og við vorum að undirbúa þeirra sóknarleik og þegar við vorum að æfa eins og Ítalir. Ég var síðan að reyna fækka varnarskiptingum ef ég á að vera hreinskilinn. Þeir keyrðu vel og tóku línumanninn úr umferð og mér fannst því allt í lagi að prufa þetta og þetta virkaði.” ,,Þetta er ekki plan A og ekki plan B. Ég væri til í að plan A myndi fúnkera en þeir sem hafa þjálfað vita það að maður þarf oft að kafa. Þá er þetta eitthvað sem við getum gripið í. Það er ekkert leyndarmál að við þurfum mjög oft að skipta vörn og sókn og stundum væri ég til í að gera tvær skiptingar milli varnar og sóknar. Kannski getur þetta einfaldað það og fækkað varnarskiptingum,” sagði Snori Steinn í viðtali við Handkastið fyrir síðustu æfingu strákanna okkar í Kristianstad í dag fyrir leikinn gegn Pólverjum á morgun. Hvað vill Snorri Steinn sjá í leiknum á morgun frá hans mönnum? ,,Númer 1,2 og 3 vil ég að við náum okkar vopnum og spilum leikinn á okkar forsendum eins og við náðum að gera gegn Ítalíu. Ef við komumst í okkar hluti þá erum við góðir en þetta allt annar andstæðingur. Þetta er miklu meiri hæð og meiri vigt og meiri þyngd en hjá Ítölum. Ítalir spiluðu gríðarlega miklar árásir allan leikinn og Pólverjarnir eru allt öðruvísi. Þeir eru komnir með spænskan þjálfara og maður sér hans handbragð á liðinu. Þeir fóru mikið í 7 á 6 gegn Ungverjum og hafa gert það í aðdraganda mótsins. Það er eitt og annað sem við þurfum að fara yfir og sem er öðruvísi frá leiknum gegn Ítalíu.”

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.