Ísland (JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP)
Strákarnir okkar unnu sannfærandi þrettán marka sigur á Ítalíu í fyrsta leik sínum á Evópumótinu í gærkvöldi, 39-26 eftir að staðan hafi verið 21-12 Íslandi í vil í hálfleik. ,,Skolphreisnun Ásgeirs ætlar að kíkja upp á herbergi til Elliða Snæs eftir þessa frammistöðu hans gegn Ítalíu. Hann klúðraði öllum þremur skotum sínum í leiknum og Ítalarnir komust helvíti oft í gegn þegar hann var í bakverðinum. Hann hefur oft átt betri daga,” sagði Stymmi klippari í uppgjörsþætti Handkastsins. ,,Þetta er basicly svipað og ég var að tala um Hauk, nema gagnstætt. Snorri greinilega treystir Elliða og lætur hann spila í gegnum mótlætið en ef þetta hefði verið Haukur þá hefði Haukur verið tekinn útaf. Snorri hefur greinilega mikla trú á Elliða og hann er okkar maður í þessari stöðu og verður þarna út þetta mót. Maður er eiginlega bara feginn að þessi lélegi leikur Elliða var gegn Ítalíu en ekki í næsta leik," sagði Sérfræðingurinn meðal annars og hélt áfram: ,,Elliði hefur traust þjálfarana en hann var ömurlegur í þessum leik, gjörsamlega ömurlegur bæði varnar og sóknarlega. En ég held að þetta hafi engin áhrif. Spilamennskan mun ekki hafa áhrif á spilamennsku hans í næsta leik, við erum ekki að fara á under goals á Elliða gegn Póllandi út frá því hvernig hann spilaði gegn Ítalíu. Hann réði ekki við þetta verkefni, hvort hann hafi verið illa stemmdur eða hvaða klisju hann getur tekið, við munum spyrja hann að því. En þetta var gjaldþrotaleikur hjá Elliða og einn lélagasti leikur sem ég hef séð hann spila með íslenska landsliðinu.” Elliði fékk lægstu einkunn leikmanna Íslands í einkunnargjöf Handkastsins eftir leikinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.