Síðuritari ákvað aðeins að heyra í Akureyringnum Degi Gautasyni nýjasta leikmanni KA og spyrja hann aðeins út í félagaskiptin frá Arendal í Noregi til KA.
Hvað kemur til að þú flytjir heim á nýjan leik og semjir við KA?
Það er margt sem spilar inní í rauninni. Við vorum búnir að vera í smá bandi frá því í sumar. Þetta byrjaði sem möguleiki á að koma eftir veturinn en þróaðist svo í að koma núna strax eftir að Ágúst skrifaði undir. Svo án þess að fara djúpt í það þá var ástandið úti hjá Arendal ekkert sérstakt, eins og sást kannski á genginu. Á sama tíma er búið að vera mikill meðbyr og metnaður í gangi í KA heimilinu. Þannig eftir góða fundi með umboðsmönnum mínum vorum við sammála um að þetta væri það rétta í stöðunni.
Hvað kvittarðu undir langan samning við uppeldisfélagið?
18 mánuði, eða út næsta tímabil.
Seturðu aftur stefnuna á að fara út í atvinnumennsku eða jafnvel opinn fyrir því að fara að festa rætur á heimaslóðum?
Já það væri mjög gaman að komast aftur út ef eitthvað spennandi kemur upp, svo ég er mjög opinn fyrir því. En hornamanna markaðurinn getur verið erfiður svo það verður bara að koma í ljós hvernig það þróast. Á meðan mun ég njóta þess að vera heima á Akureyri.
Er mögulega einhver klásúla í samningnum þess efnis að ef þú færð gott tilboð erlendis frá að KA leyfi þér að losna?
Já, við sömdum þannig að ef eitthvað spennandi kemur upp verður auðvelt að losna og stökkva á það.
Varstu ekki búinn að fylgjast vel með KA liðinu fyrir áramót? Hvernig lýst þér á liðið og stemminguna sem hefur einkennt það?
Jú ég hef að ég held séð alla leiki liðsins á tímabilinu nema einn, þegar ég var sjálfur að spila á sama tíma. Það er búið að vera ótrúlega gaman að horfa á liðið þegar stemmingingin er eins góð og hún hefur verið í vetur.
Nú er liðið komið í Final 4 og búið að fá þig og Ágúst Elí í hópinn. Ætlið þið ekki bara að setja stefnuna á að vinna bikarinn?
Jú fyrst við erum komnir þangað er markmiðið bara að fara alla leið. Ég geri ráð fyrir að KA fólkið flykkist suður á final 4 og búi til sturlaða stemmingu á Ásvöllum.
Og sama með úrslitakeppnina í vor. Markmiðið hlýtur að vera að gera eitthvað meira en bara komast í 8-liða úrslit?
Jú það er klárlega stefnan að gera eitthvað alvöru í úrslitakeppninni. Sérstaklega þar sem við getum gert KA heimilið að alvöru gryfju þar. Það á alltaf að vera erfitt að koma norður að spila.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.