Andri Már Rúnarsson ((Kristinn Steinn Traustason)
Andri Már Rúnarsson, nýliði íslenska karlalandsliðsins er komin á blað en hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir Ísland á stórmóti og segir vera tilbúin í meira og það sem koma skal. Andri Már Rúnarsson er nýliði í hópnum og segist hann fðá góðart móttökur frá strákunum í liðinu. ,,Það er tekið vel á móti mér og það er mjög gaman að vera partur af þessum hóp. Þetta er mjög skemmtilegur hópur og allir frábærir í handbolta líka og það er mjög gaman að vera hérna." Ísland mætir Póllandi í dag en leikurinn hefst klukkan 17:00 í Kristianstad. Hvernig lýst Andra á þann leik? ,,Þetta verður hörku leikur og eins og hver annar leikur á stórmóti og við erum bara fulla einbeitingu á þann leik og ef við spilum okkar leik þá ætti þetta að vera góður sigur." Viðtalið við Andra Má Rúnarsson má sjá í sjónvarpinu hér að neðan.
,Tilfinningin er mjög góð. Það var mjög gott að skora og með alla þessa áhorfendur þá var þetta bara algjör gæsahúð og bara klár í meira."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.