Szymon Dzialakiewicz ((Piotr Matusewicz / DPPI via AFP)
Íslenska landsliðið mætir Póllandi í öðrum leik liðsins á Evrópumótinu í handbolta í dag. Liðin hafa mæst fimm sinnum en langt er síðan liðin mættust síðast. Ísland unnið fjórar viðureignir meðan ein endaði með jafntefli. Sá sigur sem kemur eflaust upp í minnið hjá flestum lesendum er 32-30 sigur Ísland á Póllandi á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008. Annar leikur úr minningabankanum er sigur Íslands á Póllandi á Evrópumótinu 2010 í Austurríki þar sem Ísland vann 29-26 og tryggði sér bronsverðlaun eftir glæsilegan varnarleik frá Alexander Petterson. Hver var maðurinn að fara? Pólland má muna fífil sinn fegurri í handboltanum og hefur landsliðið verið í mikilli niðursveiflu undanfarin ár og er til að mynda handhafi forsetabikarsins eftir síðasta heimsmeistaramót. Þeirra langbesti leikmaður Kamil Syprzak línumaður PSG er ekki með liðinu á mótinu en hann fór heim af síðasta Heimsmeistaramóti og hefur neitað að mæta aftur til leiks með liðinu þrátt fyrir að Jota González hafi tekið við liðinu í millitíðinni. Miðjumaðurinn Michał Olejniczak og hægri skyttan Arkadiusz Moryto aðalmennirnir í pólska landsliðinu en þeir spila báðir við Kielce í heimalandinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.