Bjarki Már Elísson (JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP)
Strákarnir okkar unnu sannfærandi þrettán marka sigur á Ítalíu í fyrsta leik sínum á Evópumótinu á föstudaginn, 39-26 eftir að staðan hafi verið 21-12 Íslandi í vil í hálfleik. Ísland mætir Póllandi í öðrum leik sínum á mótinu í Kristianstad í dag klukkan 17:00 en með sigri gæti Ísland tryggt sér í milliriðil keppninnar, vinni Ungverjaland, Ítalíu síðar í kvöld. Handkastið er í Kristianstad og gerði upp leikinn í hlaðvarpsþætti sínum strax eftir leik. Orri Freyr Þorkelsson og Bjarki Már Elísson vinstri hornamenn íslenska landsliðsins áttu stórkostlegan leik báðir tveir en Orri spilaði fyrri hálfleikinn, skoraði fjögur mörk úr fjórum skotum á meðan Bjarki Már skoraði fimm mörk úr fimm skotum í seinni hálfleik. Stymmi klippari var hrikalega ánægður með innkomu Bjarka Más inn í leikinn. ,,Bjarki kemur inná í hálfleik eftir að Orri hafi verið mjög góður í fyrri hálfleik og var með fjögur mörk úr fjórum skotum. Bjarki hinsvegar kemur inná með þvílíkum krafti. Honum langar þetta, ég held að hann sé búinn að átta sig á því að þetta gæti verið síðasta Evrópumótið hans og jafnvel síðasta stórmótið hans. Hann ætlar greinilega að fá allt útúr því sem hann getur fengið. Hann er að gera það sem við höfum kallað eftir, gleði, leikgleði og það skein af honum og lang mesta stemningin var þegar hann var að skora,” sagði Stymmi klippari meðal annars um innkomu og frammistöðu Bjarka Más. ,,Hann er líka alltof góður leikmaður til að vera í alltof litlu hlutverki og það var flott að fá hann inn. Hann er lang skemmtilegasti leikmaðurinn í landsliðinu og hann verður að vera í stuði, innan sem utan vallar,” bætti Sigurður Gísli Bond Snorrason við sem var gestur í þættinum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.