Strákarnir okkar eru meðal eldri liða Evrópumótsins
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Björgvin Páll Gústavsson (Sævar Jónasson)

Íslenska karla landsliðið er fjórða elsta liðið á Evrópumótinu samkvæmt gögnum frá Datahandball_ reikningnum á samfélagsmiðlum X.

Meðalaldur íslenska liðsins er 27,73 ár en ríkjandi Evrópumeistarar Frakka eru með næst hæsta meðalaldurinn, 28,2 ár. Elsta liðið á Evrópumótinu eru fjórfaldir heimsmeistarar, Danir, með meðalaldur upp á 28,6.

Í 3.sæti eru Svíar með meðalaldur upp á 27,93 eða 0,20 meira en Ísland. Það má gera ráð fyrir því að Björgvin Páll Gústavsson rífi heldur betur upp meðalaldurinn í íslenska landsliðinu en Björgvin Páll verður 41 árs í maí á þessu ári. Bjarki Már Elísson er næst elstur í hópnum en hann verður 36 ára á árinu.

Ungverjar sem eru með Íslandi í riðli á Evrópumótinu og mæta Íslandi í lokaumferð riðilsins eru í 5.sæti með meðalaldur uppá 27,4 ár ásamt Svartfjallalandi. 

Hér að neðan má sjá lista yfir 12 elstu liðin á Evrópumótinu sem hefst á fimmtudaginn. Annar leikur Íslands á mótinu fer fram í dag þegar Ísland mætir Póllandi klukkan 17:00 í Kristianstad.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top