
Juri Knorr Þýskaland (SOEREN STACHE / dpa Picture-Alliance via AFP
Upp er komin ansi athyglisverð staða í A-riðil Evrópumótsins sem klárast í dag með síðustu tveimur leikjum riðilsins.Þjóðverjar eru með bakið upp við vegg og þurfa sigur gegn Spánverjum í lokaleik til að komast áfram í milliriðil keppninnar. Öll lið riðilsins geta farið áfram í milliriðil keppninnar og því er mikil spenna fyrir leikjum dagsins í A-riðlinum. Handkastið hefur reynt eftir besta megni að útskýra hvað getur gerst í riðlinum í dag: Skoðum innbyrgðisstöðu milli Serbíu, Spán og Þýskaland: Serbía er með 2 stig og markatöluna +1 Þýskaland er með 0 stig og markatöluna -3 (Þýskaland mætir Spáni í dag) Spánn er með 2 stig og með markatöluna +2 (Spánn mætir Serbíu í dag) EF Serbía vinnur Austurríki þá þurfa Þjóðverjar að vinna með þremur mörkum eða meira til að jafna Spán og Serbíu að stigum. Þá færu Serbar og Þjóðverjar áfram með betri markatölu innbyrgðis. Ef Serbía vinnur Austurríki og Þjóðverjar vinna með minna en tveimur mörkum þá fara Spánn og Serbía áfram með betri markatölu innbyrgðis. Skoðum hvað getur gerst ef Spánn vinnur Þýskaland: Austurríki er með 0 stig og markatöluna -3 (Austurríki mætir Serbíu í dag) Ef Austurríki vinnur Serbíu og Spánn vinnur Þýskaland þá enda Austurríki, Þýskaland og Serbía öll með tvö stig. Ef Spánn vinnur Þýskaland þá þarf Austurríki að vinna Serbíu með fjórum mörkum eða meira til að komast áfram og skilja Serbíu eftir. Báðir leikir Þýskaland við Austurríki og Serbíu enduðu 30-27 svo vinni Spánn, Þýskaldn og leikur Austurríki og Serbíu endar með þriggja marak sigri Austurríki 30-27 þá getum við í Handkastinu ekki trúað öðru en hlutkesti þurfi til að skera um hvaða þjóð fari áfram með Spánverjum í millriðil. Austurríki og Serbía mætast klukkan 17:00 og Spánn og Þýskaland mætast 20:30.
Þýskaland er með 2 stig og markatöluna +0
Serbía er með 2 stig og markatöfluna +3 (Serbía mætir Austurríki í dag)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.