Snorri Steinn hefur kallað inn nýjan leikmann
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Elvar Ásgeirsson (Attila KISBENEDEK / AFP)

Elvar Ásgeirsson, leikmaður Ribe-Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni hefur verið kallaður inn í íslenska landliðshópinn. HSÍ tilkynnti þetta nú rétt í þessu.

Þar segir að Elvar Ásgeirsson komi til móts við liðið strax í kvöld en íslenska liðið er mætt til Malmö þar sem liðið spilar fjóra leiki í milliriðli. Þann fyrsta á föstudagskvöld.

Er Elvari ætlað að fylla það skarð sem liðið varð fyrir í gærkvöldi er Elvar Örn Jónsson handarbrotnaði í sigri Íslands gegn Ungverjum í lokaleik sínum í riðlakeppni Evrópumótsins.

Elvar sem er uppalinn í Aftureldingu er fæddur árið 1994 en hann gekk í raðir Ribe-Esbjerg sumarið 2022 eftir veru sína hjá Nancy í Frakklandi.

Elvar á að baki 21 landsleik fyrir Ísland og var síðast með gegn Eistlendingum í umspilsleikjum fyrir HM árið 2024.

Elvar lék með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu í Ungverjalandi 2022.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top