Langþráður sigur ÍR
{{brizy_dc_image_alt entityId=

wSelfoss (Sævar Jónasson)

Selfoss tók á móti ÍR í 14.umferð Olís deildar kvenna á Selfossi í dag. Bæði lið voru í leit af sigri en gengi liðanna hafði ekki verið gott upp á síðkastið.

Heimakonur byrjuðu leikinn mun betur og komust í 4-1 eftir um fimm mínútna leik. ÍR rankaði þá aðeins við sér og jafnaði leikinn í 5-5 og var jafnræði með liðunum næstu mínútur allt þar til ÍR náði fimm marka forskoti þegar tæpar 10 mínútur voru til hálfleiks.

Selfoss náði aðeins að klóra í bakkann áður en flautað var til hálfleiks en ÍR leiddu með þrem mörkum, 17-20.

Síðari hálfleikur var eign ÍR og náðu Selfoss aldrei að ógna forskotinu sem ÍR var komið með og niðurstaðan var öruggur sjö marka sigur ÍR, 30-37.

Sigur ÍR var langþráður en þær höfðu ekki unnið leik síðan 12.nóvember þegar þær unnu Val á Hlíðarenda. Selfoss eru ennþá í neðsta sæti deildinnar með fimm stig eftir leik dagsins.

Mia Kristin Syverud var markahæst hjá Selfoss í dag með 8 mörk en hjá ÍR var Sara Dögg Hjaltadóttir markahæsta með 9 mörk.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top